Dagur í áhættuhópi fyrir COVID-19

Dagur B. Eggerts­son, borgar­stjóri Reykja­víkur, segist vera í áhættuhópi fyrir COVID-19 vegna veikinda sinna. Þetta kom fram í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins. Hann ætlaði sér að verða smit­sjúk­dóma­læknir áður en hann leiddist út í pólitík.


Dagur er læknis­menntaður og hafði hugsað sér að fara í fram­halds­nám í smit­sjúk­dómum áður en hann fór í pólitík. „Ég held að enginn borgar­stjóri í heiminum hafi verið búinn undir að stýra borg við þessar að­stæður. En áður en ég leiddist út í pólitík á sínum tíma var ég á leiðinni í fram­halds­nám í smit­sjúk­dómum vegna á­huga á far­sóttum,“ segir hann.


„Ég var búinn að taka meistara­próf í mann­réttinda­lögum með á­herslu á sótt­varnir. Þannig sá ég fyrir mér rann­sókna- og læknis­feril á þessu sviði sem ég yfir­gaf með nokkrum trega.“ Einn af fyrrum kennurum dags var þá ein­mitt Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir en Haraldur Briem, for­veri hans, kenndi Degi einnig.


„Þetta er fólk sem ég hef litið upp til ára­tugum saman og kveikti í mér þennan á­huga. Nú eru þau al­gjör­lega í fram­línunni. Ég þarf stundum að klípa mig og hugsa hvort ég sé að lifa al­heims­far­aldur sem maður lá yfir sem á­huga­verðri sagn­fræði á meðan ég var enn­þá í lækna­sloppnum,“ segir Dagur.


Fyrir tæpum tveimur árum greindist Dagur með sjald­gæfan gigtar­sjúk­dóm og þurfti hann að fara í veikinda­leyfi um tíma. „Þetta var mjög þungt fyrst og þá datt ég alveg út. Ó­vissan var kannski verst. En ég var bæði mjög heppinn að fá greiningu fljótt og fara í með­ferð sem virkaði fyrir mig. Það er ekki sjálf­gefið þegar maður er með ó­næmis- eða gigtar­sjúk­dóma.“


„ Þannig hef ég getað komist af sumum lyfjum sem ég var á en ég sprauta mig enn­þá með tveimur mis­munandi lyfjum. Það heldur sjúk­dómnum niðri en ég þarf að passa álag. Stundum hef ég líkt þessu við það að vera úti að hlaupa með teygju í bakinu. Ef ég reyni að fara of geyst þá togar gigtin í mig en ég slæst alveg við hana. Þetta er samt ekki verra en það að ég veit bara af þessu og læri á þetta.“


Hann segist þá vera í á­hættu­hópi fyrir CO­VID-19 vegna veikindanna. „Ég er á ó­næmis­bælandi lyfjum og fæ flensu­ein­kenni einu sinni í viku, sólar­hringinn eftir að ég sprauta mig. Þessar vikurnar er ég auð­vitað alltaf með það á hreinu að ég sé kominn með CO­VID-19. Þessi lyf eru ekki hæst á listanum yfir á­hættu­hópa þótt þetta falli undir þá skil­greiningu.“


„Á ein­hverjum tíma­punkti getur það komið upp hjá okkur öllum að við smitumst. Þá þarf auð­vitað bara að taka því sem að hendi ber og auð­vitað fer alls­konar í gegnum hugann hjá fólki. Ég hugsa að það hafi mörgum fleirum en mér brugðið að sjá að for­sætis­ráð­herra Breta sem er 55 ára væri kominn á gjör­gæslu.“