Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hyggst ekki verða við kröfu Hildar Björnsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að víkja úr þriggja manna þverpólitískri nefnd vegna braggamálsins. Í viðtali við RÚV segir Dagur málið einkennast af pólitísku upphlaupi.
Nefndinni var falið að móta tillögur að viðbrögðum við þeim ábendingum sem er að finna í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna málsins.
Dagur segir ekkert óeðlilegt við að hann komi að þessari vinnu. „Það hefur verið reynt að gera þetta að einhverju pólitísku upphlaupsmáli en ég held að það tengist frekar því að þetta óvenjulega skref sem Hildur tók, að taka þátt í þessari vinnu, mæltist illa fyrir í ákveðnum hluta baklands Sjálfstæðisflokksins, þeim sem vilja keyra harðlínu í öllum málum og vilja ekki neitt samstarf milli meirihluta og minnihluta en í mínum huga er það gamaldags pólitík þar sem maður nær minni árangri,“ segir Dagur við RÚV.
Hildur segir það hins vegar óeðlilegt að borgarstjóri stýri þessari vinnu. „Það er svo mikilvægt að við vinnum vel úr þessu máli því þetta hefur verið mikið í umræðunni. Við þurfum að vinna vel úr því og vinnan þarf að njóta trausts. Við þurfum að komast að niðurstöðu sem er gagnleg fyrir borgarbúa. Við þurfum að fyrirbyggja að þetta gerist aftur og ef að borgarbúar treysta því ekki að við séum að fara inn í vandaða og hlutlausa vegferð þá er þetta sjálfdautt frá upphafi,“ segir Hildur í viðtali við RÚV.