Ímynd dags hefur beðið hnekki

Ísraelsmálið var brotið til mergjar í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld og mat lagt á frammistöðu Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra í málinu, en síðustu dagar hafa verið erfið pólitísk vika fyrir hann.

Það voru ritstjórarnir Benedikt Jóhannesson á Vísbendingu og Steingerður Steinarsdóttir á Vikunni sem mættu til Sigmundar Ernis í gærkvöld, en Benedikt vare þar gallharður á því að borgarstjórn eigi ekkert að vera að skipta sér af utanríkismálum eins oig gert var með umdeildri samþykkt meirihlutans um að sniðganga vörur frá Ísrael í innkaupum borgarinnar. Steingerður var ekki endilega sömu skoðpunar, en bæði voru þau þó sammála því að málið allt hafi skaðað borgarstjórann persónulega og pólitískt. Benedikt sagði að ímynd hans hefði beðið hnekki.

Í þættinum kom Benedikt Jóhannesson með tilgátu sína um örlög Gunnars Braga Sveinssonar á ráðherrastóli, eins og vikið er að í annarri frétt hér á Hringbraut, en eins var rætt um það hvort leggja eigi niður Þróunarsamvinnustofnun og hvort það veiki stjórnsýsluna - og loks voru tollamálin í brennidepli; sitjandi ríkisstjórn er jú farin að daðra svolítið við Evrópusambandið þvert á það sem menn ætluðu.

Ritstjórarana er hægt að nálgast í heild sinni eða í klippum á hringbraut.is, en þættirnir eru sýndir á þriðjudagskvöldum klukkan 21:30.