Dagur gerði þjóðverja að íslendingum

Sá orðfimi fjölmiðamaður sem Ómar Ragnrsson er, er varla einn um það að segja Dag Sigurðsson mann dagsins; hann hafi hrifið alla með sér sakir þeirrar rósemi hugans sem hann hafi tileinkað sér í bland við auðsæja einbeitingu.

\"Það hefur löngum verið keppikefli Þjóðverja að gera hlutina eins vel og unnt er og vera yfirvegaðir,\" skrifar Ómar í bloggi dagsins og bætir við: \"Vansvefta Dagur Sigurðsson eftir fagnaðarlæti næturinnar klikkaði ekki í morgunviðtalinu á ZDF og kláraði það með þeirri einbeitingu og rósemi hugans sem hann hefur tileinkað sér og hefur hrifið alla sem vitni hafa orðið að því.\"

Hann segir að í grein i einu þýsku blaðanna sé haft á orði að Dagur hafi afrekað það að gera hina ungu þýsku landsliðsmenn að Íslendingum: \"Er þá átt við það, að Íslendingar eru þekktir fyrir einstakan baráttuvilja, leikgleði, stemningu og samheldni,\" skrifar Ómar.

Þessi aldni íþróttafréttamaður skrifar af innsæi: \"Það fer ekki fram hjá Þjóðverjum hve íslenskir handboltaþjálfarar hafa náð langt á alþjóðlegum vettvangi, Alfreð Gíslason, Dagur Sigurðsson, Guðmundur Guðmundsson, Aron Kristjánsson og fleiri, þótt stríðsgæfan hafi ekki alltaf fallið þeim öllim í skaut á mótum, þar sem mikið jafnræði er með liðum og munurinn stundum örlítill á milli sigurs og ósigurs.\"

Hér standi tveir upp úr: \"Um þessar mundir standa þeir Dagur og Alfreð með pálmann í höndunum, en Dagur sendir skilaboð til sín sjálfs og annarra með því að enda stefnuyfirlýsingu sína með orðinu auðmýkt. Er ekki lítils virði fyrir okkar smáu þjóð að eiga slíkan fulltrúa á erlendri grundu,\" skrifar Ómar Ragnarsson.