Dagur er áfram borgarstjóri

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, verður borgarstjóri nýja meirihlutans í Reykjavík. 

Oddvitar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna undirrituðu í dag samning um meirihlutasamstarf flokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur og kynntu hann á blaðamannafundi í morgun í rjóðri við Breiðholtslaug.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, verður forseti borgarstjórnar og Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, formaður borgarstjórnar til að byrja með en Pawel Bartoszek, annar maður Viðreisnar, tekur síðan við því embætti af henni.

Nýtt ráð umhverfis- og hverfismála verður stofnað í borginni, segir Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sem verður formaður þess ráðs og varaformaður borgarráðs.