Dagur: borgin mun ekki lækka útsvarið

Lækkun útvars væri að mati Dags B. Eggertssonar borgarstjóra ómarkviss leið til að koma til móts við þá sem lægst hafa launin í samfélaginu. Þetta sagði hann á Sprengisandi á Bylgjunni nú í morgun. Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi spurði hann að því hvort borgin hjálpað til við að leysa kjaradeilur með því að lækka útsvarið.

Dagur svaraði því neitandi. „Það hefur ekkert stéttarfélag mér af vitandi sett fram þá ósk. Eini hópur fólks sem hefur sett fram þessa ósk eru borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.“ Hann bætti við að Sjálfstæðisflokkurinn talaði jafnan fyrir þessu í minnihluta en gerði þetta aldrei þegar hann væri í meirihluta.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/dagur-borgin-mun-ekki-laekka-utsvari