,,Þetta er miklu meira en söngur. Dagskráin hjá okkur er meira og minna fíflalæti\" sagði Bergþór Pálsson í þættinum Lífsins list hjá Sirrý á Hringbraut í gærkvöldi. Dagskrá Sætabrauðsdrengjanna hefur slegið í gegn og farið sigurför um land allt.
Nýlega sungu þeir í Ólafsvík og á Ísafirði og var vel tekið. Á næstu dögum eru það Austfirðirnir sem þessir vinsælu tónlistarmenn heimsækja. Þeir koma fram í Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 21. júli og í Neskaupstað 22. júlí. Þann 23. júlí verða þeir á Borgarfirði eystra og á Fáskrúðsfirði koma þeir fram tvisvar sinnum á frönskum dögum þann 24. júlí.
Sætabrauðsdrengirnir flytja meðal annars lög eftir Fúsa Halldórs, Jónas og Jón Múla Árnasyni, Freymóð Jóhannsson. Og í þættinum sungu þeir ,,Þú komst í hlaðið á hvítum hesti\" eftir Davíð Stefánsson.
Nú hefur Hlöðver Sigurðsson komið inn í hópinn í stað Garðars Thors Cortes sem er að syngja í Hamborg. Aðrir Sætabrauðsdrengir eru Bergþór Pálsson, Gissur Páll Gissurason, Halldór Smárason píanóleikari og Viðar Gunnarsson.
Hægt er að sjá þáttinn Lífsins list á hringbraut.is.