Dagskráin á hringbraut í kvöld

Á dagskrá Hringbrautar í kvöld eru Eldhugar: Hátindarnir og Jólatónleikar Vox Felix.

Í Eldhugar: Hátindarnir er farið yfir úrval fyrstu þáttaraðarinnar af Eldhugum, þar sem Pétur Einarsson og viðmælendur hans fara út á jaðar hreysti, hreyfingar og áskorana lífsins.

Jólatónleikar Vox Felix er eins og nafnið gefur til kynna upptaka af árlegum tónleikum Vox Felix sem fóru fram í Hljómahöll í Reykjanesbæ í byrjun desember. Kórinn var með sérstakan jólagest að þessu sinni en tónlistarmaðurinn Jón Jónsson söng með kórnum. Sjónvarp Víkurfrétta annaðist upptökur á tónleikunum.

Dagskráin:

Kl. 20:00

Eldhugar: Hátindarnir

Kl. 21:00

Jólatónleikar Vox Felix

Kl. 22:00

Eldhugar: Hátindarnir (e)

Kl. 23:00

Jólatónleikar Vox Felix (e)