Dagpeningar og olíuverð er málið

Bryggjan ræðir í þættinum í kvöld við fjóra sjómenn sem segja má að séu af nýrri kynslóð. Linda hitti hópinn á Múlakaffi þar sem þeir útskýrðu afstöðu sína til málefnanna í verkfallinu. En erfiðlega hefur þó gengið að fá útgerðarmenn í viðtal um stöðuna.

Línur skýrast í verkfallinu með tímanum. Það má segja að tvö atriði verði aðallega að leysa svo það semjist.

Olíuverðsviðmið og dagpeningar, áður kallað sjómannaafslátturinn.

Sjómannaafslátturinn var tekin af eftir hrunið. Í dag fá sjómenn rúmar 1600 krónur á dag í fæðispeninga frá útgerðinni sem eru skattlagðir. Sjómenn vilja fá þetta bætt og segja útgerðina eiga að greiða það.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samband fyrirtækja í sjávarútvegi skrifaði grein í síðustu viku þar sem sjá má að spjótin í þessu verkfalli standa líka á stjórnvöldum ekki síður en á milli deiluaðila.

Í greininni gagnrýnir hún stjórnvöld fyrir að skattleggja fæðispeninga sjómanna. Þeir eigi að vera skattfrjálsir eins og dagpeningar annarra sem eru fjarri heimilum sínum, svo sem flugáhafna og ríkisstarfsmanna. Hún bendir á að einfalt sé að breyta þessum reglum skattstjóra. En skilyrði skattstjóra fyrir skattfrjálsum dagpeningum eru:

  1. Að peningarnar voru greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðanda
  2. Peningarnar voru greiddir vegna ferða utan venjulegs vinnustaðar.

Heiðrún Lind segir breytingu á þessu forsendu þess að það verði hægt að semja.

Olíuviðmiðið er hitt megin efni deilunnar. Það var sett árið 1986 þegar olíuverð var hátt og útgerðin stóð illa. Með olíuviðmiðið tekur útgerðin eftir hvern túr hluta af verðmæti aflans áður en honum er skipt á milli sjómanna og útgerðar. Þessi hlutur er 30 prósent sem útgerðin tekur og merkir olíukostnaði. Sjómenn segja olíukostnað ekki svo háan og of mikið sé tekið framhjá skiptum eins og það kallast.

Í dag, 13.febrúar hefur ekki verið boðað til nýs samningafundar en sjómenn ku ætla að ráða ráðum sínum saman í dag en svo virðist sem að fjölmiðlabann ríkissáttasemjara sé ekki lengur í gildi.