Í byrjun desember var ég farin að hafa alvarlegar áhyggjur af líkamsþyngd minni sem var komin hættulega nærri því sem hún var verst á árum áður. Ég sá fram á að sprengja fyrri met um jólin ef ég færi ekki í strangt aðhald sem ég gerði. Þegar kom að jólum voru nokkur kíló farin og eftir að hafa innbyrt nokkrar máltíðir af reyktu með sósu og salati og fellt fáeinar hvítvínsflöskur og bjórdósir steig ég á vigtina í morgun og reyndist vera tæpum tveimur kílóum léttari en í byrjun mánaðarins.
Nú taka við þrír dagar sultar og seyru, sódavatn í stað bjórs, bæði í fljótandi og föstu formi og egg í stað súkkulaðimola því ný svallveisla er framundan sem rétt eins og jólin mun standa í þrjá daga að venju. Að þeim loknum mun taka við nýtt aðhaldstímabil þar sem tíu kíló skulu fjúka á næstu þremur mánuðum. Ég er ekki ein um þetta því sambýliskonan fyrrverandi ætlar einnig í sambærilegt aðhald. Að því loknu sækjum við hina fyrrverandi sambýliskonuna til Íslands okkur til skemmtunar og yndisauka (engin nöfn nefnd).
Í hinu nýja aðhaldstímabili mun sódavatn skipta miklu máli, kannski ekki sódavatn beint, fremur það sem kallað er kolsýrt vatn með eða án bragðefna. Það er bara eitt sem ég hefi áhyggjur af. Á bjórdósir er stimplaður síðasti neysludagur og vitað að hann súrnar með tímanum.
Ætli bjórbirgðirnar sem ég keypti fyrir jólin haldist óskemmdar þar til sultartímabilinu lýkur?