Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fullyrðir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar muni ekki halda velli eftir kosningar. Það byggir hann m.a. á því að heilbrigðismál séu svelt í andstöðu við vilja þjóðarinnar. Hann ætlar að safna 100.000 undirskriftum ef stjórnin hækkar ekki framlög til heilbrigðismála í fjárlagafrumvarpinu.
Kemur þetta fram í grein sem Kári ritar í Fréttablaðið í dag.
„Þegar maður er ríkisstjórn sem hefur lokkað að sér kjósendur með því að lofa því að bæta heilbrigðiskerfið þá endurreisir maður Landspítalann með því að sjá honum fyrir þeim tækjum sem nútíma læknisfræði kallar á og því fagfólki sem þarf til að hlúa að sjúkum og meiddum meðan maður safnar liði til þess að reisa nýtt hús.“
Hann ber saman mikilvægi fjármuna til kirkjunnar og heilbrigðismála.
„Þegar ég benti lækni nokkrum vini mínum á hvað það væri skringilegt að þjóð sem ekki hefði efni á að sinna brýnum vandamálum heilbrigðiskerfisins yki útgjöld til einnar tegundar annarslífstrúar svaraði hann að kannski stafaði það af því að hæstvirtur fjármálaráðherra hafi raunverulegt innsæi inn í vandamál heilbrigðiskerfisins en í stað þess að leysa þau ætli hann að sjá til þess að þeir sem látist af þeirra völdum verði jarðsungnir með stæl og komi ekki til með að skorta góðar jarðarfarir.“
Kári fer víðar en greinina má í heild lesa hér.