Dæmi um ríflega milljón í stjórnarlaun

Meðallaun stjórnarformanna hjá fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands eru rétt ríflega 600 þúsund krónur á mánuði. Hæst eru þau hjá Marel, alls 1200 þúsund krónur og hafa þau hækkað um tíund á milli ára. Árslaun stjórnar fyrirtækisins, sem í sitja sjö manns, eru góðar 43 milljónir króna. Stjórnarformaður Marels er Ásthildur Margrét Otharsdóttir.


Þessar upplýsingar koma fram í samnatekt DV í dag, en þar segir jafnframt að lægstu stjórnarlaunin sé að finna hjá Nýherja, en þar fær stjórnarformaðurinn 390 þúsund krónur á mánuði, en almennir stjórnarmenn 130 þúsund krónur. Hækkun milli ára er fjögur prósent. Stjórnarformaður Nýherja er Benedikt Jóhannesson.


Í samantekt blaðsins kemur fram að fyrirtækin Össur og Tryggingamiðstöðin greiða bæði stjórnarformönnum sínum vel yfir 600 þúsund krónur í  laun á mánuði, Össur nær eina milljóna króna, en TM er hófstilltara 700 þúsund krónur.


Gamalgróin fyrirtæki eins og Eimskipafélag Íslands og Icelandair greiða stjórnarformönnum sínum undir meðallaunum stjórnarformanna fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands, í báðum tilvikum 550 þúsund krónur.


Forstjóralaun þeirra fyrirtækja sem blaðið skoðar af þessu tilefni eru misjöfn; Jón Sigurðsson forstjóri Össurar er með 19,6 milljónir króna í mánaðarlaun og fer þar með himinskautum, en Nýherji er sem fyrr nægjusamastur þegar kemur að launum og þóknunum; Finnur Oddsson forstjóri þess fyrirtækis er með röskar tvær milljónir í mánaðarlaun.