Mjólkurvörur, ostur og viðbit hefur hækkar töluvert í veðri í öllum verslunum frá því í vor að því er fram kemur í nýjustu verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.
Algengast var að sjá um 4% hækkun í könnun sambandsins í nýliðnum mánuði frá sambærilegri könnun í maí. Sem dæmi má nefna að 1 l. Fjörmjólk hefur hækkað um allt að 9%, 250 gr. af ósöltuðu smjöri frá MS hefur hækkað um 9 til12% og 500 gr. af hreinu skyri frá KEA hefur hækkað um 2 til 7%.
Á þessu fjögurra mánaða tímabili hefur verð hækkað frekar en lækkað á þeim vörum sem til voru í báðum mælingum í flestum verslunum. En í verslunum Iceland og Hagkaupum hefur verð hækkað í um 60% tilvika, hjá Samkaupum-Úrvali, Nettó og Krónunni í um 50% tilvika og hjá Bónus í um 40% tilvika. Í Víði hefur verð hækkað og lækkað næstum jafnoft í samanburðinum og hjá Fjarðarkaupum hefur verð í um þriðjungi tilvika hækkað en oftast er umbeðin vara á sama verði og í seinustu mælingu. Í öllum verslunum er sama verð á milli mælinga á þó nokkrum vörum.
Sem dæmi um mismikla hækkun á milli verslana má benda á að flatkökur frá Kökugerð HP Selfossi hafa hækkað um 3 til 10% í verði, mest hjá Nettó úr 123 kr. í 135 kr. en minnst hjá Samkaupum-Úrvali úr 155 kr. í 159 kr. Hálfur lítri af kók í dós hefur mest hækkað um 7% hjá Nettó og Iceland en minnst um 2% hjá Fjarðarkaupum.