Stóraukinn straumur erlendra ferðamanna til Íslands á síðustu árum hefur skapað yfrin verkefni fyrir rútubílstjóra hér á landi sem margir hverjir eru farnir að fá meira þjórfé ofan í kaupið en nokkru sinni hefur þekkst hér á landi.
Að sögn þeirra sem til þekkja getur rútubílstjóri fengið allt að 100 þúsund krónur í þjórfé fyrir akstur með stóra hópa um náttúrugersemar landsins en þá verður hann líka að vera heppinn með hóp, því mjög misjafnt er hversu örlátir hóparnir eru á þjórfé og fer það einkum eftir þjóðerni. Skandinavar og íbúar í norðanverðri Evrópu þykja einna nískastir í þessum efnum, en Bandaríkjamenn allra örlátastir - og er ekki óalgengt að hver þeirra greiði tvö þúsund krónur í þjórfé fyrir þriggja daga ferð, sumir þó mun meira - og því getur 40 manna rúta gefið vel af sér í þessum efnum.
Búist er við 25% fjölgun erlendra ferðamanna í ár miðað við síðasta ár og að þeir verði alls um ein milljón og 250 þúsund þegar upp verður staðið í árslok. Aukinn straumur bandarískra ferðalanga til Íslands á ekki síst þátt í þessari fjölgun.
Rútubílstjórar sem Hringbraut hefur haft tal af segja að allir raftar hafi verið á sjó dregnir til að anna spurn eftir hópakstri, en í þeim efnum hafi miklu skipt að stjórnvöld hafi á árunum eftir hrun stutt atvinnuleitendur til meiraprófs og sú fjölgun meiraprófshafa sem þá hafi orðið komi sér einkar vel um þessar mundir.