Dæmi um 500 þúsund á fermetrann

Verðlagning á húseignum á miðborgarsvæðinu hefur tekið talsverðan kipp upp á við á allra síðustu misserum og eru íbúðir í og við Kvosina að seljast við verði sem ekki hefur þekkst til þessa. Um 80 prósenta verðmunur - og í sumum tilvikum meira en 100 prósenta - er á fasteignum milli gróinna úthverfa og miðborgarinnar. Algengt fermetraverð á húseignum í 101 er nálægt 380 þúsundum króna, en ríflega 210 þúsund þegar utar dregur. Þó eru mörg dæmi þess, að sögn fasteignasala, að dæmigerðar 100 fermetra hæðir í hjarta Reykjavíkur séu að seljast á yfir 50 milljónir króna, sem merkir að fermetraverðið er komið yfir 500 þúsund í sumum tilvikum.