Dæmdur fyrir stór­hættu­lega líkams­á­rás við hlölla­báta: hlaut heila­hristing, brotin rif­bein og brotnar tennur

Hinn 23 ára gamli Hjör­var Ari Ragnars­son var í dag dæmdur af Héraðs­dómi Reykja­víkur í sex mánaða skil­orðs­bundið fangelsi fyrir að hafa veist að öðrum manni með „í­trekuðum höggum og spörkum í höfuð og líkana, þar af að minnsta kosti eitt hné­spark í höfuð,“ sumarið 2017 við Hlölla­báta á Ingólfs­torgi.

Maðurinn hlaut mikla á­verka eftir á­rásina en hann hlaut rif­beins­brot bæði hægri og vinstra megin, heila­hristing, brot úr neðri augn­tönn vinstra megin og sprungu í glerung, mar og bólgu á hægri kinn, mar á hægri upp­hand­legg og öxl, skraps­ár á háls hægra megin og á hægra hné.

Hjör­var játaði ský­laust sök í málinu og viður­kenndi bóta­kröfu þolanda en Hjör­var krafðist þess að hann myndi hljóta vægustu refsingu. Hjör­var gerðist aftur á móti árið 2018 sekur um ölvunar­akstur og gekkst við sekt og er brotið nú hegningar­auki við þá sektar­gerð.

„Við á­kvörðun refsingar er auk framan­greinds, á­kærða til máls­bóta litið til þess að á­kærði var ungur að aldri þegar hann framdi brotið, hann játaði brot sitt ský­laust fyrir dómi og sam­þykkti greiðslu bóta. Þá eru hátt í tvö og hálft ár frá því á­kærði framdi brotið og verður á­kærða ekki kennt um það hve rann­sókn málsins dróst. Til refsi­þyngingar er litið til þess að árás á­kærða var gróf og beindist að höfði brota­þola,“ segir í dómnum.

Þá kemur fram að á­rásin hafi haft al­var­legar af­leiðingar fyrir þolandann, en hann krafðist þess að Hjör­var skyldi greiða sér skaða- og miska­bætur auk út­lagðs kostnaðar og máls­kostnað, alls 1.313.968 krónur, sem Hjör­var sam­þykkti. Einnig þurfti hann að greiða 199.495 krónur í máls- og sakar­kostnað.