Dæmd fyrir brot gegn valdstjórninni

Sólveig Anna Jónsdóttir sem býður sig fram til formennsku í verkalýðsfélaginu Eflingu gegn lista trúnaðarmannaráðs er ein af svonefndum níumenningum sem voru ákærðir fyrir árás á Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu fyrir að hafa ruðst inn í Alþingishúsið 8. desember 2008.    

Í viðtali við DV þann 9. febrúar sl. sagði Sólveig m.a.: “Okkur var lýst sem skríl, hyski, það var gjarnan talað um hettuklædd ungmenni.”

Fjallað er um árás níumenninganna á Alþingi í bókinni Búsáhaldabyltingin eftir Stefán Gunnar Sveinsson. Þar segir m.a. að níumenningarnir hafi verið ákærðir fyrir ýmis brot, meðal annars á 100. grein almennra hegningarlaga um árás á Alþingi.

Í bókinni kemur fram að Sólveig Anna Jónsdóttir hafi hlotið dóm. Hún fékk 100.000 króna sekt fyrir að hafa haldið þingverði og þannig komið í veg fyrir að hann gæti sinnt skyldum sínum.  Nokkrir þingverðir og lögreglumenn slösuðust í þessum átökum, sumir alvarlega.

Sólveig Anna og aðrir úr hópi níumenninga sendu frá sér yfirlýsingu í kjölfar dómanna yfir þeim. Þar sagði m.a.: “Alþingi er smánarblettur á íslensku samfélagi og ritstjórar helstu dagblað landsins eru “Göbbelsar íslensks ríkis og alþjóðakapítals.”