Furðulegt atvik átti sér stað á hárgreiðslustofu, í Lake Ronkonkoma í New York fylki, þegar dádýr stökk í gegnum glugga þar. Þegar eigandi hárgreiðslustofunnar, Jenisse Heredia, heyrði glerið brotna hélt hún að bíll hefði keyrt á bygginguna.
„Það var risastórt. Ég gjörsamlega fríkaði út,“ sagði Heredia í samtali við The New York Times.
Einn viðskiptavinur slasaðist þegar dádýrið stökk í gegnum gluggann, en viðskiptavinurinn sat í sófa upp við gluggann á hárgreiðslustofunni. Eftir að dádýrið stökk í gegnum gluggann, hljóp það inn í starfsmannaherbergið. Þar snéri dádýrið við og hljóp aftur í gegnum hárgreiðslustofuna og að lokun út um hurðina.
Hér að neðan má sjá myndbandið.