Costco veitir engar upplýsingar

Velta dagvöruverslana dróst saman um 3,6% í júní frá sama mánuði í fyrra segir í fréttatilkynningu Rannsóknaseturs verslunarinnar.  Costo er ekki með í mælingunni heldur aðeins þær verslanir sem voru á markaði fyrir komu Costco.

Costco kaus að veita ekki upplýsingar um veltu sína þegar eftir því var leitað. Vöxtur í dagsvöruverslun síðastliðin ár hefur verið nokkuð stöðugur. Samdrátturinn er því úr takti við þá þróun.

Líklegt er að Costco hafi klipið af markaðshlutdeild þeirra verslana sem fyrir voru á markaði og það skýri samdráttinn,

 

Nánar www.rsv.is

[email protected]