Bandaríska verslunarkeðjan Costco hyggst opna verslun hér á landi á næsta ári. Samningar um kaup á húsnæði verða undirritaðir á föstudaginn.
Það var mbl.is sem greindi frá málinu. Áætlað er að verslunin verði opnuð um mitt næsta ár. Hún á að vera staðsett í Kauptúni 3 í Urriðaholti, en þar er vörulager IKEA og Bónus meðal annars til húsa.
Verslunin verður allt að 14 þúsund fermetrar, en auk hennar mun Costco reka sjálfsafgreiðslustöð með eldsneyti á svæðinu.
Costco er önnur stærsta smásölukeðja heims og hefur í töluverðan tíma haft það til skoðunar að opna verslun hér á landi. Fyrirtækið starfrækir yfir 670 verslanir í tíu löndum og hefur á undanförnum árin aukið umsvif sín töluvert utan Bandaríkjanna.