Athygli vekur að nýjasta brumið í verslunarflóru landsmanna, Costco kemur ekkert sérlega vel út úr nýjustu verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, en verslunin á raunar mjög fáar vörur í þeim flokkum sem eftirlitið skoðaði að þessu sinni.
Costco kemur sérlega illa út þegar verðsamanburður er gerður á grænmeti og ávöxtum. Raunar er mikill verðmunur á ávöxtum og grænmeti í verslunum landsins, eða frá 66% upp í 137%. Mesti munurinn var á AvCostco með langocado en kílóið af því kostaði 1249 kr. í Costco en 528 kr. í Fjarðarkaupum. Þá var 125% verðmunur á Mangó milli verslana, dýrast var það hjá Víði á 785 kr. kílóið á meðan kílóið var á 349 í Iceland. Verðmunurinn á banönum milli búða var 123% en ódýrastir eru þeir í Bónus á 179 kr. kg en á 399 kr. kg í Hagkaup.
Iceland er dýrasta matvörukeðjan á Íslandi samkvæmt könnun ASÍ, en Bónus sú ódýrasta.