Comey líkir trump við mafíuforingja

Viðtal við James Comey sem ABC sjónvarpsstöðinn sýnir á sunnudaginn mun sjokkera forsetann og liðsmenn hans. Þetta er haft eftir heimildamönnum sem voru viðstaddir upptöku viðtalsins á heimili Comeys á mánudaginn.

Það eina sem lekið hefur út af því sem Comey segir í viðtalinu er að hann hafi líkt forsetanum við mafíuforingja. Vefmiðillinn Axios segir að viðstaddir hafi verið þrumu slegnir yfir því sem Comey sagði í viðtalinu og hann hafi sagt frá hlutum sem hann hafi aldrei talað um áður. Sumir hafi lýst upplifuninni sem súrrealískri.

FBI forstjórinn fyrrverandi sem Donald Trump rak í fyrra hefur ekki gefið færi á viðtölum síðan í maí, en bók hans \"A Higher Loyalty,\" þar sem hann fjallar meðal annars um samskiptin við forsetann kemur út á þriðjudag.

Fjölmiðlastríðið kringum forsetann virðist nú í algleymingi. Í þætti Seans Hannity á Fox News í gær kom eins konar svar við mafíuforingja-ummælum Comeys þegar Hannity brá upp mynd sem átti að sýna tengingar milli þriggja \"glæpafjölskyldna\" í kerfinu sem rói að því að koma Trump frá völdum. Þar trónaði Robert Mueller sérstakur saksóknari efst. Hannity hefur sýnt Trump óbilandi stuðning í þáttum sínum og þeir ræðast oft við.

Forsetinn vakti sérstaka athygli á þætti Hannitys á Twitter í gærkvöldi rétt áður en hann hófst.

The Washington Post segir frá því í dag, að Steve bannon fyrrum ráðgjafi forsetans hafi undanfarna daga verið að kynna liðsmönnum forsetans áætlun hvernig Trump geti losnað undan rannsókna sérstaks saksóknara. Fyrsti liðurinn í þeirri áætlun er að reka Rod Rosenstein aðstoðardómsmálaráðherra.