Fyrirtæki Michaels Cohens, einkalögmanns Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, tók í fyrra á móti greiðslum upp á samtals um 500 þúsund dali (rúmlega 50 milljónir ISK) frá félagi í eigu rússnesks auðmanns sem handgenginn er Putin Rússlandsforseta.
Bankareikningurinn sem Cohen fékk greitt inn á er hinn sami og notaður var í þagnargreiðslunni til klámmmyndaleikkonunnar Stormy Daniels.
Ólígarkinn, Viktor Vekselberg, er einn þeirra sem fulltrúar Roberts Mueller sérstaks saksóknara hafa yfirheyrt í tengslum við Rússarannsóknina og hann er meðal þeirra sjö auðmanna í Rússlandi sem nú sæta refsiaðgerðum bandarískra fjármálayfirvalda. Vekselberg, sem var viðstaddur embættistöku Trumps í janúar í fyrra, var sérstaklega spurður um þessar tilteknu greiðslur þegar fulltrúar FBI yfirheyrðu hann á flugvelli fyrr á þessu ári.
Vekselberg var m.a. stjórnarformaður rússneska álframleiðandans Rusal 2007 til 2012. Rusal er í eigu auðmannsins Oleg Deripaska, sem hafði viðskiptatengsl við Paul Manafort fyrrum kosningastjóra Trumps, sem sætir nú ýmsum fjármálaákærum sérstaks saksóknara.
Samkvæmt yfirliti um reikninginn, sem Michael Avenatti lögmaður Daniels birti á Twitter í gær, sýna færslur samtals um 4,4 milljóna dala viðskipti Cohens við fyrirtæki af ýmsum toga frá því rétt fyrir kosningarnar 2016 fram til í janúar á þessu ári. Meðal þessarra fyrirtækja eru AT&T og Novartis.
Here is a new link to our Executive Summary as the old link is no longer active. https://t.co/DabZ44dWgK
— Michael Avenatti (@MichaelAvenatti) May 9, 2018
Hinar umdeildu 500 þúsund dala greiðslur frá Vekselberg komu frá fjárfestingafyrirtæki hans í Bandaríkjunum, Columbus Nova, sem frændi hans Andrew Intrater stýrir. FBI hefur samkvæmt frétt CNN einnig yfirheyrt Intrater um greiðslurnar, svo og um 300 þúsund dala greiðslur sem runnu frá honum til framboðs Trumps.