Forsetaframbjóðendurnir Donald Trump og Hillary Clinton eru sigurvegarar ofurþriðjudagsins í bandarísku forkosningunum en bæði höfðu betur í sjö af ellefu fylkjum í nótt, raunar þeim sömu - og hafa tekið afgerandi forystu í kapphlaupinu um útnefningu, Hillary þó sínu meiri.
Oft og tíðum hefur verið sagt að það ráðist á téðum ofurþriðjudegi, þegar forkosning fer fram í mörgum fjölmennum fylkjum Bandaríkjanna, hver nær bílstjórasætinu í kapphlaupinu um að komast á leiðarenda. Það er þó ekki hægt að slá því föstu að svo sé í ár, þótt forskot Clinton og Trump hafi vissulega aukist. Einkum á það við um Trump sem enn hefur ekki náð yfiurgnæfandi fylgi í nokkru þeirra fylkja þar sem kosið hefur verið, ólíkt Clinton sem gjörsigraði keppinaut sinn í Suður Karólínu, svo dæmi sé tekið, með á áttunda tug prósenta.
Eins og staðan er nú er Hillary Clinton komin með 1.001 kjörmann af þeim 2.382 sem hún þarf til þess að tryggja sér útnefningu flokksins. Eftir nóttina er Sanders með 371 kjörmann á bakvið sig. Clinton fékk flest atkvæði í Alabama, Arkansas, Georgia, Massachusetts,Tennessee, Texas og Virginíu. En Sanders fór með sigur af hólmi í Colorado, Minnesota, Oklahoma og Vermont.
Hjá repúblikanaflokknum er Donald Trump með 274 kjörmenn af þeim 1.237 sem þarf til sigurs. Ted Cruz er með 149 og Marco Rubio með 82, en athygli vakti í nótt hvað Trump hafði víðtækan stuðning, jafnt í suðurríkjunum sem og í Nýja Englandi.