Clinton með yfirburðarstöðu

Gera má ráð fyrir því Hillary Clinton frambjóðandi Demókrata sé örugglega sigurvegari forsetakosninganna í Bandaríkjunum, að mati Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðings. Hann segir að hins vegar sé bandarísk kosningakerfi þannig vaxið að niðurstaða kosninga getur verið dregin í efa í sumum tilvikum. Engar lokatölur séu í raun til þess að segja til um hver sigrar, þótt farið sé að tölunum. Aðal gjörningurinn sé að mótframbjóðandinn játi sig sigraðann og “krýni” þar með nýja forseta, eins og Eiríkur orðaði það og stóru sjónvarpsstöðvarnara lýsi yfir úrslitunum fremur en aðrir.

Eins og staðan er núna er Clinton með þvílíkt forskot á Trump að næstum ómögulegt er að hann vinni kosningarnar, segir Eiríkur á Þjóðbraut í kvöld, þótt alltaf geti eitthvað afgerandi komið upp á. Hann telur að ganga megi út frá því að Hillary Clinton verði næsti forseti. Myndband sem birt var um Trump og hans viðhorf og kvennamál hafa gert honum mjög erfitt fyrir að halda fylgi.

Í kappræðunum í nótt kom í ljós og vakti mikla athygli að Trump sagði ekki geta svarað því hvort hann myndi sætta sig við úrslitin og ósigur. Hann sagðist ganga út frá því að verið væri að svindla í kosningunum og því þykir líklegt að hann muni hefja umræðu um það eftir kjörið 8.nóvember næstkomandi.  

Eiríkur taldi Trump hafa staðið sig betur en í fyrstu kappræðunum sem hafi verið “skelfilegar”. Hins vegar hafi hann ekki verið sterkur á svellinu og mistekist að nýta sér á veikleika Clinton Hún aftur á móti hafi náð að snúa vörn í sókn með góðum árangri.

Eiríkur hefur undanfarið á Þjóðbraut rætt bandarísku forsetakosningarnar og farið yfir kappræður Hillary Clinton og Donalds Trump.

Þriðju og síðustu kappræðurnar fóru fram í nótt að íslenskum tíma.