Tónlistargoðsögnin og Íslandsvinurinn Eric Clapton er þessa dagana staddur við veiðar á Norðurlandi, en hann hefur rennt fyrir lax hér á landi um fimmtán ára skeið, einkum í Húnavatnssýslum.
Þau eru sumsé nokkur árin sem Eric Clapton hefur veitt á Íslandi, fyrst í Laxá á Ásum og núna Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu, en þar hefur hann verið við veiðar á hverju ári síðustu fimm árin.
Clapton byrjaði veiðina í vikunni og verður þarna í nokkra daga með vinum sínum við veiðar í ánni en Vatnsdalsá hefur gefið 340 til 350 laxar í sumar og marga væna. Að sögn Gunnars Bender, veiðisérfræðings Hringbrautar er Clapton lúnkinn að veiða og er örugglega búinn að setja í laxa.
Þessi mikla tónlistarkempa sem innleiddi hina hægu hönd í gítarleik tónlistarsögunnar fagnaði sjötugsafmæli fyrr á þessu á ári.