Forráðamenn tölvufyrirtækisins CCP horfa nú til þess möguleika að flytja að minnsta kosti hluta starfsemi þess til útlanda sakir íslensks haftabúskapar og alþjóðlegra samninga sem gera erlenda staðsetningu fýsilegri.
Fréttablaðið segir í morgun að þessi möguleiki hafi verið ræddur af alvöru á síðasta ársfundi CCP, en þá hafi sérstaklega verið horft til þess að flytja stjórnunarteymi fyrirtækisns út en önnur starfsemi yrði þá áfram hér á landi. Engar ákvarðanir liggi ennþá fyrir í þessum efnum en ávinningurinn af flutningnum sé þó skýr og ljós. Eldar Ástþórsson upplýsingafulltrúi CCP vildi ekki staðfesta við blaðið að þessi möguleiki væri ræddur innan fyrirtæksins.
Heimildir blaðsins herma að á meðal mögulegra höfuðstöðva CCP séu kanadísku borgirnar Toronto og Vancouver, en einnig borgir í Bandaríkjunum og Evrópu.
Hjá CCP starfs um 320 manns á alþjóðavísu, þar af 200 manns á Íslandi.