Nýtt framboð formlega stofnað

Miðflokkurinn er nýtt stjórnmálafl sem verður sem stjórnmálaflokkur formlega stofnað á sunnudag. Oddviti flokksins og stofnandi hans er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrum forsætisráðherra. Á fundinum á sunnudag kynnir Sigmundur Davíð flokkstarfið og rætt verður um horfur í stjórnmálum og um þau verkefni sem eru framundan. Fundarmönnum býðst að gerast stofnfélagar í Miðflokknum. Leggj má inn tillögur í málefnastarf Miðflokksins. Þá býðst fundarmönnum að skrá sig sem meðmælendur framboðsins.

[email protected]