Catalina ncogo vill 18 milljónir: „ég missti allt [...] þetta er al­ger klikkun“

Catalina Ncogo missti allar eigur sínar í brunanum mikla í apríl í fyrra þegar fyrirtækið Geymslur brunnu. Catalina segir í samtali við Fréttablaðið að hún hafi misst heilt innbú og tjónið sé 18 milljónir. Þá hefur Catalina stefnt Geymslum. Catalina segir í samtali við vef Fréttablaðsins:

„Ég missti allt inn­búið mitt og allar eigur mínar á Ís­landi í brunanum. Þetta er mjög sorg­legt allt saman.“

Catalina var þekkt hér á landi sem Miðbaugsmaddaman og var dæmd árið 2010 í þriggja og háls árs fangelsi, meðal annars fyrir vændisrekstur. Þá var hún kærð fyrir mansal en sýknuð af þeirri kæru. Hefur Catalina haldið fram síðar að hún hafi ekki vitað að þetta væri bannað. Catalina hefur í nokkur skipti á þessu ári opnað sig um vændi og útlistað það hvernig það sé að vera vændiskona. Í frétt DV frá því í mars á þessu ári talaði Catalina á afar jákvæðan hátt um vændi en minntist ekki á hinar myrku hliðar sem þar er að finna, eins og misnotkun, kúgun, ofbeldi og mansal. Catalina sagði:

„Ég vil segja nokkuð um þær konur sem hata okkur. Þegar kúnninn kemur, góður og myndarlegur, fullkominn á pappírum, Range Rover, Porsche eða þess háttar,  í góðu starfi, á kannski fyrirtæki eða hverjir sem þeir eru. Þeir koma til okkar á morgnanna. Þeir skemmta sér, við tökum vel á móti þeim. Við erum góðar við þá. Þegar þeir eru búnir að leika sér með okkur fara þeir í sturtu, klæða sig, setjast aftur upp í flotta bílinn sinn, Porsche-inn eða hvað sem þeir keyra, og klukkan fjögur þegar þeir eru búnir í vinnunni þá fara þeir heim til eiginkvennanna. Kyssa eiginkonuna, borða mat með fjölskyldunni. Greyið konan hefur ekki hugmynd um hvar maðurinn hennar hefur verið.“

Líkt og fram kemur á vef Fréttablaðsins hefur Catalina kært Geymslur og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í október.

„Ég missti allt í brunanum [...] Þetta er al­ger klikkun,“ segir Catalina en frétt Fréttablaðsins má lesa hér.