Carmen kærir jón baldvin

Car­men Jó­hanns­dótt­ir hef­ur lagt fram fram kæru á hend­ur Jóni Bald­vini Hanni­bals­syni, vegna kyn­ferðis­legr­ar áreitni sem hún segir hann hafa beitt sig á heim­ili hans á Spáni þann 16. júní 2018. Mbl.is greinir frá.

„Málið er nú komið í hend­ur lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu. Ég ber fullt traust til embættisins og trúi því að málið verði rann­sakað af fag­mennsku. Að teknu til­liti til þessa mun ég ekki tjá mig meira um málið op­in­ber­lega að svo stöddu,“ segir í tilkynningu frá Carmen.

Mikill fjöldi kvenna hefur ásakað Jón Baldvin um kynferðisbrot og er tilfelli Carmen það nýjasta. Car­men er ein fjög­urra kvenna sem stigu fram í viðtali í Stund­inni í janú­ar og sögðu frá kynferðis­legri áreitni og kyn­ferðis­legu of­beldi sem þær urðu fyr­ir af hendi Jóns Bald­vins. Elstu brot­in eru sögð hafa átt sér stað þegar Jón Baldvin var kenn­ari við Haga­skóla árið 1967.

Í viðtalinu við Stundina greindi Carmen frá því hvernig Jón Baldvin hafi strokið rass hennar ákaft í vitna viðurvist, sem hún segir hafa verið Bryndísi Schram, eiginkonu Jóns Baldvins, og móður sína. Carmen og móðir hennar höfðu verið í heimsókn hjá Jóni Baldvin og Bryndísi á heimili þeirra á Spáni en yfirgáfu það fljótlega eftir atvikið.

Í kjöl­far um­fjöll­un­ar Stund­ar­inn­ar var stofnaður sér­stak­ur lokaður Met­oo-hóp­ur á Face­book þar sem mikill fjöldi kvenna til viðbótar steig fram og greindi frá ósæmilegri hegðun Jóns Baldvins. Í febrúar var síðan hluti þeirra frásagna birtur á sérstakri bloggsíðu, metoo-jonbaldvin.blog.is.

Jón Bald­vin hefur ítrekað neit­að allri sök í mál­un­um, gagnrýnt það sem hann kallar öfgafemínista harðlega fyrir að ráðast gegn sér og sakað Aldísi Schram, dóttur sína, um að bera ábyrgð á öllum ásökunum í hans garð.