Cargow er á góðri siglingu

Skipafélagið Cargow, sem er í eigu Bjarna Ármannssonar og fleiri fjárfesta, er á góðri siglingu. Bjarni er á meðal gesta Jóns G. í kvöld. Þeir Jón ræða álflutninga Cargow fyrir Alcoa; Iceland Seafood og stöðuna á fiskmörkuðum erlendis; gott ráð frá Pétri heitnum Blöndal; stefnu Bjarna sem fjárfestis; tvær ferðir Bjarna á Suðurskautslandið og sumrin hans á sjónum.