Býst við verkfallsbrotum

Sólarhringsverkfall félagsmanna Eflingar og VR sem starfa á hótelum og hjá hópbílafyrirtækjum hófst á miðnætti. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, býst við að einhverjir aðilar fremji það sem stéttarfélagið skilgreinir sem verkfallsbrot. Fréttablaðið greinir frá.

„Ég vona svo sannarlega að það komi ekki til átaka. En eins og ég met ástandið þá er stemningin því miður þannig að einhverjir aðilar virðast ætla að láta á það reyna að fremja það sem við skilgreinum sem verkfallsbrot,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir í samtali við Fréttablaðið.

Hún segir að Efling og VR muni að einhverju leyti sinna sameiginlegri verkfallsvörslu í dag og einblína þar á ákveðin hótel sem þau telja að hafi framið verkfallsbrot fyrir tveimur vikum. „Við munum fara á milli hótela og sinna eftirliti með rútum líka. Þegar kemur að hótelunum munum við náttúrulega sérstaklega fara á þau hótel sem gerðust sek að okkar mati um einhvers konar verkfallsbrot 8. mars.“

Sólveig Anna segist ekki sannfærð um að dagurinn muni ganga snurðulaust fyrir sig. „Það er alls ekki tilfinningin sem ég er með. Ég reikna með því að okkur muni berast ýmsar fregnir af alls konar rugli og vitleysu.“

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Fréttablaðið að um sorgardag sé að ræða fyrir allt samfélagið í heild. „Það er sorglegt að VR af öllum stéttarfélögum landsins sé að grípa til verkfalla með Eflingu. Það er ljóst að ekki er einhugur innan VR um þessa aðferðafræði, enda var verkfallið samþykkt með minnsta mögulega mun.“