Veðurlag sumarsins mun einkennast af þokkalegum hlýindum, einkum á hálendinu og fyrir norðan og austan. Spáð er meiri úrkomu en að jafnaði á sömu landsvæðum.
Þetta kemur fram í veðurlagsspá Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings, sem hann birti á veðurvefnum Bliku.
Hann segir að á þessum svæðum séu 60-70 prósent líkur á að hiti endi í efsta þriðjungi miðað við síðustu 20 ár. „Lofthringrásin og staða veðurkerfa er spáð að verða nokkuð breytileg, þar sem skiptast á ólíkir veðurkaflar yfir sumarmánuðina. Ekki er að sjá nein merki þess að einhver ákveðin vindátt verði frekar ríkjandi umfram aðra,“ segir í spánni.
50-60 prósent líkur eru á markvert meiri rigningu á hálendinu sem og austanlands, sem Einar telur sennilegt að sé líka til marks um breytilegt veðurlag í sumar þar sem engin sérstök vindátt verði ríkjandi.