Stefnt er að því að skammbyssum verði komið fyrir í sérstökum vopnakassa í lögreglubílum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um miðjan desember.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Í fréttinni sem lesa má á visir.is segir að til þessa hafi sérsveitin verið eina lögregluliðið á höfuðborgarsvæðinu með vopn á sér. Á síðustu árum hafi hins vegar almennir lögregluþjónar stundað skotvopnaæfingar í því skyni að taka ný skref.
Haft er eftir yfirlögregluþjóni á höfuðborgarsvæðinu að vopnageymsla í almennum löggubílum brúi bið eftir sérsveit. Tilgangurinn með breytingunum sé að minnka viðbragðstíma vopnaðra lögreglumanna.
„Lögregluþjónar munu ekki koma til með að hafa aðgang að skammbyssunum nema þar til bær yfirmaður láti þeim í té aðgangskóða að vopnakassanum eftir að hann hefur verið upplýstur um málavexti. Yfirmaður mun þá meta nauðsyn þess í hverju tilviki fyrir sig,“ segir Fréttablaðið.
Blaðið skýrir einnig frá því að sést hafi til lögreglumanns með skammbyssu á vettvangi umferðalsyss hjá lögreglu á Akureyri í vikunni. Haft er eftir yfirlögregluþjóni á Akureyri að sérstakar ástæður hafi skýrt það. Nýir löggubílar embættisins verði útbúnir vopnakassa.