Byrjaði í jóga og áfengislöngunin hvarf

Einn litríkasti myndlistarmaður landsins, Daði Gubjartsson er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í kvöld og er óhætt að segja þar verði töluð íslenska af opnara taginu.

Daði kann ekkert endilega best við troðnar slóðir, hallaði sér að borgaralegum öflum í byrjun ferils síns, þvert á strauma innan listageirans og valdi málverkið þegar það þótti nánast hallærislega púkó eins og það var kallað á hræringaskeiðinu á áttaunda áratug síðustu aldar.

Daði hefur átt velgengni að fagna í list sinni, en að auki tekið sjálfan sig í gegn á síðari árum, byrjaði að stunda jóga um fimmtugt sem breytti lífssýn hans algerlega og varð meðal annars til þess að áfengislöngunin hvarf, eða hreinlega gufaði upp með öllu.

Það er hlegið af innlifun í þessum þætti þar sem Daði kemur til dyranna eins og hann er klæddur - og auðvitað með hattinn á höfði.

Mannamál hefjast í kvöld klukkan 21:00.