Fátt ef nokkuð virtist geta komið í veg fyrir verkfallaaðgerðir starfsmanna álversins í Straumsvík í dag, en seint í gærkvöld barst tilkynning frá samninganefnd starfsmanna þar sem segir að verkfallsaðgerðum sé frestað en eigi að síður fara starfsmenn hörðum orðum um stjórn fyrirtækisins og málflutning síðustu vikur..
Þar með er afstýrt tveggja vikna framleiðslustöðvun versins og var alls óvíst hvort móðurfyrirtæki þess telji það þess virði að kynda ker þess að nýju.
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi sagði í bréfi sem hún sendi til starfsmanna í september að yfirvinnubann starfsmanna hefði ískyggileg áhrif á rekstur álversins. Álverið sé rekið með tapi frá degi til dags og berjist í bökkum. Ef slökkt verði á álverinu hljótist mikill kostnaður af því að kveikja á því aftur. Forsvarsmenn álversins á Íslandi hafa sagt að þá sé ekki sjálfgefið að álverið opni aftur.
Verði álverinu lokað hefði það mikil áhrif á afkomu Hafnarfjarðarbæjar. Alls nema tekjur til Hafnarfjarðar vegna álversins um 2,4 milljörðum króna, en meira en helmingur starfsmanna álversins býr í Hafnarfirði. Þá eru viðskipti álversins við aðila í bænum um 1,7 milljarðar króna.
Í tilkynnningu frá starfsmönnum segir að þeir uppligi sem leiksoppa í hagsmunatafli Rio Tinto og það sé hart að vera kennt um lokun álvers þegar þeir sæki rétt sinn um lögbundnar kjarabætur