Býr til heimstískuna á djúpavogi

Ágústa Margét Arnardóttir hönnuður, menntaðist á Ítalíu en býr og starfar á Djúpavogi þar sem hún hannar hátískufatnað, töskur og fylgihluti úr leðri, fiskroði, hreindýraskinni og fleiri náttúrulegum efnum.

 

Hönnun hennar hefur vakið mikla athygli heima og erlendis - og þá ekki síður verklag hennar og nýtni og virðing fyrir hráefninu, en hún nýtir skinnið af hreindýrinu til fullnustu og afgangsklippur sem til falla fara í armbönd, símahulstur og fleiri smáhluti. 

 

Ágústa á fjögur börn og nýtur þess að búa og starfa á Djúpavogi. Þetta 400 manna samfélag tekur líka virkan þátt í hönnunarfyrirtækinu hennar sem ber nadnið Arfleifð. Sem dæmi má nefna er að 95 ára gömul kona á Djúpavogi kom að vinnslu við töskur í lúxuslínu fyrirtækisins.  Gamla konan nýtti sér afgangsræmur til að vefa úr og sómir það sér vel í fallegum handtöskum sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn falla fyrir. 

 

Á Djúpavogi rekur Ágústa Margrét verslun og gætir þess að vinna hluta hönnunarvinnunnar í versluninni svo ferðamenn geti fylgst með ferlinu. Sirrý hitti Ágústu Margréti í Ráðhúsi Reykjavíkur á sýningunni Handverk og hönnun sem nú stendur yfir, en þátt hennar er hægt að sjá í heild sinni eða að hluta á hringbraut.is