Byltingin, verkföll og kommúnismi

Það verður fjörlegt að vanda á Þjóðbraut Páls Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þar mætir Frosti Sigurjónsson formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og ræðir allt að því kommúnískar hugmyndir sínar um að gera Landsbakann að samfélagsbanka, Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kemur glóðvolgur af ársfundi samtakanna og ræðir þann himinn og haf sem er á milli launakrafna verkalýðsforystunnar og vilja atvinnurekenda til samninga - og loks verður rætt við Björn Jón Bragason sem mætir með nýja hrunbók sína beint úr prentsmiðjunni, en hún nefnist Bylting - og hvað svo?


Þættir Páls eru frumsýndir klukkan 20.00 á fimmtudagskvöldum, öllum landsmönnum aðgengilegir og þeim að kostnaðarlausu.


Klippur úr þætti hér: