Byltingar á matvörumarkaði

Í þættinum í kvöld: Mikil umbrot á matvörumarkaði, eina atvinnuhnefaleikakona Íslendinga, móðir langveikst fíkils og börn sem borða bara grænmeti. 

Bónus, Krónan og Costo - hvað er að gerast?

Mikil umbrot eru nú mikil á matvörumarkaði. Kjartan Örn Sigurðsson, stjórnarmaður hjá Samtökum verslunar og þjónustu og framkvæmdastjóri Verslanagreiningar og Bjarki Pétursson frá Zenter rannsóknar og greningarfyrirtæki mæta í þáttinn til Lindu. Meniga hefur t.a.m. gert nýja greiningu á t.d. markaðshlutdeild stærstu matvörukeðjanna hér á landi og Costco.

 

Úrræðaleysi gagnvart móður langveiks fíkils

 Guðlaug Björk Baldursdóttir er móðir langveiks fíkils. Hún segir nær engin úrræði hafa í gegnum tíðina hafa verið fyrir son sinn og hún sem móðir hans sjá alfarið um hann þótt hann sé alvarlega veikur líkt og aðrir sjúklingar. Heilbrigðiskerfið hefur ekki stað og Guðlaug hefur sjálf sinnt því að „afeitra“ son sinn heima við sem hefur falið í sér ógnvænlegar stundir. Hún segir frá þessu á Þjóðbraut.

 

Grænmetisætur við eldhúsborðið

Jón Yngi Jóhannsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands kemur og segir frá tilurð og innihaldi bókarinnar „Hjálp – barnið mitt er grænmetisæta!“.  

 

Stór boxbardagi framundan

Íslenskar bardagakonur: Valgerður Guðsteinsdóttir, eina atvinnuhnefaleikakona okkar Íslendinga er á leið í bardaga á stærsta viðburði allra tíma í sögu kvennahnefaleika á Norðurlöndum.

Sunna Rannveig Davíðsdóttir atvinnukona í MMA æfir mikið með Valgerði og er með henni í undirbúningnum.  Þær mæta í Þjóðbraut til Lindu.