Bylting boðuð á austurvelli í dag

Um 5500 manns hafa boðað komu sína til að mótmæla á Austurvelli á í dag kl. 17:00 undir yfirskriftinni Bylting! Uppreisn!  Í boðuninni segir að almenningur sjái sig nú knúinn til að koma núverandi ríkisstjórn frá störfum.


Þar segir að ríkisstjórnin sé að valda varanlegum, óafturkræfum skaða fyrir þjóðina og eru mótmælendur hvattir til að koma með lykla með sér til að búa til hávaða og koma skilaboðunum á framfæri að þeir lyklar sem ríkisstjórnin hefur að framtíð landsins hafa þeir ekki umboð fyrir lengur, og skulu skila.


Orð Sigmundar Davíðs forsætisráðherra í viðtali við Eyjuna í gær um veruleikafirringu þjóðarinnar fór illa í marga.  Þá þykir samningamönnum háskólamanna og hjúkrunarfræðinga forsætisráðherra hafa sent heldur kaldar kveðjur inn á samningafund þeirra í dag, en þar lét hann að því liggja að semja ætti fyrst á almennum markaði áður en gengið yrði frá kjörum ríkisstarfsmanna.