Byljótt veðurlag, suddi og slydda

Veðurlagið verður á að giska önugt þessa vikuna, en hver lægðin ratar upp að landinu fram yfir helgi, þó með engin ofsaveður, en hvassviðri samt, einkum þó á fimmtudag.

Vindhraðinn fer í 15 m/s í dag með rigningu eða slyddu sunnan og suðvestanlands og skúrir eða éljum eftir hádegi, en hægara og úrkomulítið verður með kvöldinu. Áttin verður svo breytileg eða austlæg á morgun með allt að 18 m/s, slyddu eða rigningum um sunnan- og vestanvert landið, en minni ofankomu annars staðar. Hiti verður 0 til 5 stig, en víða vægt frost í kvöld og nótt.

Á fimmtudag er svo spáð sudda, suðaustan 18 til 23 m/s og talsverðri slydda eða rigningu framan af degi og hiti 0 til 5 stigum, en svo snýst hann í suðvestan 13 til 18 með éljum og kólnar.

Af vegum er það einna helst að frétta að það er ófært á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, en þæfingur á Vopnafjarðarheiði og þungfært á Háreksstaðaleið yfir í Jökuldal.

Hálkublettir eru  á Hellisheiði og í Þrengslum. Ófært er í Kjósaskarði. Annars er hálka og  hálkublettir á flestum vegum á Suðurlandi, þó síst á Hringveginum.