Ljóst er að byggt verður yfir rústir landnámsskálans sem fannst við uppgröft í í Lækjargötu í sumar, en þar fannst einn lengsti langeldur sem fundist hefur við uppgröft af þessu tagi.
Minjarnar eru á lóð norðan við Íslandsbankahúsið í í Lækjargötu þar sem reisa á hótelbyggingu og þykja sýna að fleiri landnámsbæi er að finna á þessu svæði en þann sem varðveittur hefur verið undir hótelbyggingu í Aðalstræti og er þar til sýnis gestum og gangandi. Skálinn í Lækjargötu virðist vera mun stærri en sá sem er til sýnis í Aðalstræti.
Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að Minjastofnun Íslands meti það svo að ekki sé ástæða til að varðveita rústirnar í Lækjargötu, en sú þekking sem uppgröfturinn hafi leitt í ljós muni skila sér í frekari rannsóknum á þessu sviði.
Aldursgreiningar eiga enn eftir að leiða í ljós aldur rústanna, sem þó þykir ljóst að séu frá því landnám hófst hér á Íslandi á níundu eða tíundu öld.