Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,6%, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í morgun.
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl 2018 er 137,4 stig sem er 0,3% hækkun frá fyrri mánuði. Innlent efni hækkaði um 0,5% (áhrif á vísitölu 0,2%) og innflutt efni hækkaði um 0,3% (0,1%).