Býður rasista á hátíðlegustu athafnirnar

Hildur Knútsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi varaþingkona Vinstri grænna sem skipaði áttunda sæti á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir síðustu þingkosningar, er hætt í flokknum.

„Ég get ekki verið í flokki sem situr í ríkisstjórn sem semur ekki við ljósmæður og býður alræmdum rasista á hátíðlegustu athafnirnar,“ skrifar Hildur á Facebook. „Það er fullt af frábæru fólki í VG með hjartað á réttum stað, en ég vil ekki vera þar lengur.“

VG hefur sætt harðri gagnrýni vegna stjórnarsamstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn undanfarna mánuði.

Nánar á

https://stundin.is/grein/7181/eg-get-ekki-verid-i-flokki-sem-situr-i-rikisstjorn-sem-semur-ekki-vid-ljosmaedur-og-bydur-alraemdum-rasista-hatidlegustu-athafnirnar/