Býður sjónvarpsþjófi að sækja fjarstýringuna líka: „Takk fyrir að spara mér ferðina“

Heidi Schweitz Pétursdóttir veltir því fyrir sér hvort sá einstaklingur sem stal sjónvarpinu hennar geti einnig stolið fjarstýringunni að sjónvarpinu.

„Þú sem stalst 12 ára gömlu sjónvarpi sem var úti en ég ætlaði með í sorpu mátt koma og sækja fjarstýringuna. Takk fyrir að spara mér ferðina,“ segir Heidi í Facebook færslu sinni á facebook hópinn „Langholtshverfi - 104.“

Færsla hennar hefur vakið mikla athygli. 140 manns hafa brugðist við henni og margir tekið undir. „Ég ætti að setja gamla VHS tækið út fyrir viðkomandi,“ segir ein í athugasemd.

„Kannski átti hann fjarstýringuna en vantaði sjónvarpið,“ skrifar annar.