Teitur Atlason, varaformaður Neytendasamtakanna mun bjóða sig fram í næsta mánuði sem formann samtakanna. Jóhannes Gunnarsson, formaður hefur leitt samtökin í tugi ára. Teitur sem er gestur á Hringbraut klukkan 21 í kvöld vill efla samtökin og segir þau vinna mikla vinnu sem kannski sjáist ekki alltaf.
Teitur gagnrýnir harðlega verðhækkanir hjá 10-11 matvörubúðunum sem hann segir vera svínslegt gagnvart erlendum gestum en hækkun varanna er í þeim þremur búðum sem eru í miðborginni. Hann telur það vera græðgi sem muni bitna á upplifun ferðamanna.