Býður ólafur ragnar sig enn fram í dag?

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum í dag, mánudag 18. apríl, kl 16:15.

Erindi fundar fæst ekki uppgefið en grunur leikur á að Ólafur Ragnar muni tilkynna að hann sé hættur við að hætta sem forseti og muni bjóða sig aftur fram.

Ólafur Ragnar hefur í vor setið 20 ár á forsetastóli en hann hlaut kosningu árið 1996 og tók þá við af Vigísi Finnbogadóttur sem hafði setið í 16 ár.