Býður endurgreiðslu á tónlistarupptökum

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, leggur til tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar tónlistar að lögum.

Tónlistarmenn munu fá endurgreiddan 25 prósent af kostnaði vegna hljóðritunar á tónlist sinni á Íslandi verði frumvarp ráðherra samþykkt.  Vonast er með því að erlendir aðilar sjá sér hag í að hljóðrita tónlist á Íslandi og auðga þar með þessa atvinnugrein.

Lagt er til að útgefendur tónlistar njóti ívilnana í formi endurgreiðslu á hluta af kostnaði sem fellur til við hljóðritun tónlistar. Sá kostnaður sem gert er ráð fyrir að verði endurgreiðsluhæfur er tímagjald í hljóðveri, launakostnaður aðkeyptra flytjenda og tæknimanna, eftirvinnsla, ferða- og flutningskostnaður og eigin vinna tónlistarmannsins.

Enn fremur segir í tilkynningu ráðuneytisins að rekstrargrundvöllur útgáfuaðila tónlistar á Íslandi hafi veikst þar sem sala á hljómdiskum hafi hrunið og rafræn sala á tónlist ekki enn náð fótfestu.

rafræn sala á tónlist hefur ekki enn náð fótfestu og sala á hljómdiskum hefur hrunið. Íslenskur tónlistariðnaður býr að auki við erfið starfskilyrði sökum smæðar markaðs og takmarkaðs fjármagns.