Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, telur að þannig sé nú komið fyrir Vigdísi Hauksdóttur þingmanni Framsóknarflokksins að hún geti ekki setið lengur á þingi. Varaformaðurinn ritaði bloggfærslu í gær sem Hringbraut fjallaði um þar sem hann benti á ábyrgð Vigdísar á því að saka embættismenn um brot sem kalla á viðurlög upp á margra ára fangelsi ef fótur væri fyrir.
Í svari við fyrirspurn Hringbrautar hvort Björn Valur telji að Vigdís eigi að segja af sér, segir varaformaður VG:
\"Þingmenn sem bera á fólk ítrekað glæpsamlegt athæfi án þess að fyrir því sé nokkur fótur geta hvorki virðngar sinnar vegna né vegna virðingar þingsins setið á þingi.\"
Um hvernig því skuli framfylgt segir Björn Valur:
\"Alþingi þarf að hafa einhver tæki og/eða tól til að grípa inn í til varnar almenningi þegar þingmenn fara fram með offorsi og hótunum líkt og Vigdís gerir ítrekað. Alþingi má ekki vera verndaður vinnustaður þingmanna hvað þetta varðar heldur á Alþingi að vernda og verja almenning.\"
Spurður um pólitíska ábyrgð formanns Framsóknarflokksins eða annnara sem standa nálægt Vigdísi, segir Björn Valur:
\"Þegar þingmaður ber alvarlegar sakir á einstaklinga eða hópa fólks líkt og hér um ræðir ætti forseti Alþingis skilyrðisLaust að grípa til viðeigandi aðferða í samstarfi og samvinnu við formenn allra þingflokka, aðgerða sem miða að því að vernda almenning og launafólk gegn slíkum árásum og/eða þá að vísa ásökum til lögreglu ef ástæða er til þess.\"
En hverja telur Björn Valur ábyrgð Sigmundar Davíðs, forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins?
\"Formenn stjórnarflokkanna og formenn þingflokka stjórnarflokkanna verða að lýsa yfir afstöðu sinni og þingflokka stjórnarflokkanna til ásakana þingmanna úr þeirra röðum, ásakana sem myndu leiða til fangelsisvistar fyrir fjölda fólks í fjármálaráðuneytinu og stofnunum ríkisins ef þær reyndust á rökum reistar. Ef ásakanir þingmanna af þessari stærðargráðu á hendur opinberum starfsmönnum eru rangar, á Alþingi að áminna viðkomandi þingmenn. Það er í höndum þingmanna sjálfra að ákveða hvort þeir víki sæti vegna slíkra máka. Alþingi getur hins vegar svipt þingmenn friðhelgi ef þeir sem verða fyrir ítrekuðum árásum af þeirra hendi vilja leita réttar síns og bera af sér sakir fyrir dómstólum, sem gæti vel gerst.\"
Meginástæða kröfu Björns Vals Gíslasonar nú er að Vigdís hefur ítrekað sakað starfmenn fjármálaráðuneytisins un skjalafals en skv. svörum starfsmanna ráðuneytisins dregur hún rangar ályktanir af gögnum.