Búvörusamningurinn er ekki til tíu ára

„Hjáseta okkar við lokaafgreiðslu skýrðist af því að einhver samningur þarf að vera í gildi og við höfum kreist það skýrt út úr stjórnarmeirihlutanum að nýr þingmeirihluti getur tekið samninginn upp. Það er því yfirlýst af löggjafanum að þetta sé ekki samningur til 10 ára,“ skrifar Árni Páll Árnason á Facebook þar sem hann færir rök fyrir hjásetu þingmanna Samfylkingarinnar við atkvæðagreiðslu um búvörusamninginn.

Árni Páll segir ennfremur: „Samfylkingin lagði fram fjölmargar breytingatillögur sem allar voru felldar - síðast í gær tillaga um að fella undanþágu MS frá samkeppnislögum úr gildi eftir aðlögunartíma. Hún féll naumlega og hjáseta VG tryggði stjórnarflokkana í því máli. Áframhaldandi undanþága MS frá samkeppnislögum er því skýrt í boði þessara þriggja flokka. Við greiddum atkvæði með frávísunartillögu á búvörusamninginn í upphafi en hitt var orðið alveg ljóst að við vorum aldrei að fara að ná að fella þennan samning. Stjórnarflokkarnir gátu alltaf reitt sig á hjásetu VG, sem vildi ganga enn lengra í öfuga átt.“